Fara í efni

Fyrstu Mitsubishi PHEV fjórhjóladrifsbílarnir afhentir.

Mitsubishi Outlander PHEV er kominn til landsins og voru fyrstu bílarnir afhentir eigendum sínum síðastliðinn föstudag. Mitsubishi Outlander PHEV er einstakur að mörgu leiti en hann sameinar eiginleika sem engum hefur tekist hingað til ...

Mitsubishi Outlander PHEV er kominn til landsins og voru fyrstu bílarnir afhentir eigendum sínum síðastliðinn föstudag. Mitsubishi Outlander PHEV er einstakur að mörgu leiti en hann sameinar eiginleika sem engum hefur tekist hingað til ...

Mitsubishi Outlander PHEV er kominn til landsins og voru fyrstu bílarnir afhentir eigendum sínum síðastliðinn föstudag.

Mitsubishi Outlander PHEV er einstakur að mörgu leiti en hann sameinar eiginleika sem engum hefur tekist hingað til. Bíllinn er raf- og bensíndrifinn fjórhjóladrifsbíll og uppfyllir þarfir þeirra sem vilja rúmgóðan, sparneytinn og umhverfisvænan ferða- og fjölskyldubíl hentugan íslenskum aðstæðum.

Í sparneytni og útblæstri kemst enginn bíll af sambærilegri stærð í námunda við árangur Misubishi Outlander PHEV sem hreinlega setur ný viðmið. Hann keyrir eingöngu á rafmagni, með engum útblæstri, allt að 52 kílómetra við bestu aðstæður. Eyðsla fyrstu 100 km með fullhlaðna rafhlöðu getur verið aðeins 1,9 lítrar með útblæstri 44 g CO2 pr. km (EU prófunargildi frá Mitsubishi Motors). Þegar rafmagnið klárast þá skiptir hann sjálfkrafa yfir í bensín svo ökumaður þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af fjarlægðum á rafmagnsakstri.

Einnig er bíllinn búinn fjölmörgum fullkomnum öryggiskerfum sem auka möguleika á að fyrirbyggja slys. Sjálfvirk hraðastilling (ACC) heldur aksturshraða stöðugum og stillir fjarlægð til næsta bíls fyrir framan; hann heldur sem sagt sama hraða og bíllinn fyrir framan. Bremsi sá bíll bremsar Outlander PHEV sjálfkrafa. Árekstrarvari að framan með bremsuaðstoð (FCM) sendir boð um neyðarhemlun og hemlar, ef þörf krefur, til að komast hjá árekstri. Akreinavari (LDW) sendir boð ef Outlander PHEV er á leið út af akrein. Spólvörn, stöðugleikavörn, 9 loftpúðar, m.a. hnjávarnarpúðar fyrir bílstjóra, ásamt Xenon-aðalljósum með sérstaklega breiða ljóskeilu eru einnig staðalbúnaður auk rafmagnsopnanlegrar afturhurðar. Mitsubishi Outlander PHEV hlaut fimm stjörnur í árekstrarprófun EuroNcap.

Enginn bíll af sambærilegri stærð og gerð kemst í námunda við árangur Misubishi Outlander PHEV sem setur ný viðmið í sparneytni og útblæstri. Hann keyrir eingöngu á rafmagni, með engum útblæstri, allt að 52 kílómetra við bestu aðstæður. Eyðsla fyrstu 100 km með fullhlaðna rafhlöðu getur verið aðeins 1,9 lítrar með útblæstri 44 g CO2 pr. km (EU prófunargildi frá Mitsubishi Motors). Þegar rafmagnið klárast þá skiptir hann sjálfkrafa yfir í bensín svo ökumaður þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af fjarlægðum á rafmagnsakstri. Bensín og rafmagn; valið er ökumannsins.