Karfan er tóm.
Ný og stórbætt aðstaða í Þorraholti
29. september. 2026
Hekla hefur opnað nýjar höfuðstöðvar í Þorraholti, Garðabæ. Flutningurinn í Þorraholt markar kaflaskil, en þar mun aðstaðan verða eins og best verður á kosið fyrir viðskiptavini og starfsfólk.
Í nýju höfuðstöðvunum sameinast starfsemi Heklu undir einu þaki: bílaumboð Heklu, verkstæði, varahlutaverslun, Hekla notaðir bílar og Stilling vara- og aukahlutaverslun (sem mun opna síðar í vetur).
Við þökkum viðskiptavinum kærlega fyrir sýndan skilning á meðan á framkvæmdum og flutningi stendur og biðjumst velvirðingar á tímabundnum óþægindum.

Staðsetning nýrra höfuðstöðva (smellið á kortið fyrir neðan)


